22. júní 2006

labbitúr dauðans...


Skvísan
Originally uploaded by Anna Margrét.
...ég og mamma fórum í bæinn í dag...þurfti að láta gulla fá bílinn upp úr hádegi og bauð mömmu með mér því hún er að svipast um eftir sófaborði...þannig að við löbbuðum úr síðumúlanum upp og niður grensásveginn og þaðan niður í skeifu...já og þar út um allt bara og enduðum svo á að taka leigubíl heim...

náði svo í emilíu á leikskólann og við fórum og krítuðum parís og lékum okkur aðeins í parís...þessi mynd er einmitt tekin af skvísunni í parís...hún var sko alveg með það á hreinu hvernig þetta virkar...fyrst hendir maður steininum og svo hoppar maður...hehe

annars er hún emilía með heilan sandkassa í hárinu núna...fór í bað og gjörsamlega tapaði sér þegar ég var að reyna að skola úr...það fór fullt í baðið en samt er hellingur eftir...reyni að greiða það út í fyrramálið...

við skötuhjúin erum að horfa saman á smallville frá upphafi...ég hélt þetta væru miklu eldri þættir en þetta er bara síðan 2001....skrítið hvernig tíminn virðist stundum líða hægt og stundum hratt...

já og fyrir ykkur sem ekki föttuðuð það þá er þessi treiler sem ég talaði um um daginn eitthvað bull sem ég bjó til...er að spá í að leggja þetta fyrir mig...það er að verða handritshöfunudur eða leikstjóri...harhar

jæja...ætla að góna á þáttinn...

20. júní 2006

The Tommi Saga...

var að sjá flottan treiler af stærstu sumarmyndinni núna...ég ætla pottþétt að sjá þessa þegar hún kemur í bíó...hver vill koma með mér???

...jæja...draslið tekur sig ekki til sjálft...

19. júní 2006

helgin og fleira...


Brunahani
Originally uploaded by Anna Margrét.
...það var sko gaman um helgina...rósa var gæsuð og heppnaðist dagurinn og kvöldið þrusuvel...

ég er að fara í vinnuna á eftir...ekki alveg í vinnustuði eftir svona skemmtilegt helgarfrí...en annars er komin dagsetning á sumarfrí fjölskyldunnar...við verðum öll saman í sumarfríi frá 15. júlí til 27. júlí...en feðginin taka lengra...eða sko þau byrja fyrr...jebbídíjebb...

13. júní 2006

óli prik...

þetta finnst mér fyndið...hehe

11. júní 2006

samtal...

hún: mér finnst að mæður eigi að vera heima hjá börnum sínum
ég: já ég er sammála því en það er erfitt að lifa á tekjum eins nú til dags
hún: áttu börn
ég: já eina stelpu
hún: og þú getur ekki verið heima hjá henni allan daginn
ég: nei...enda hefur hún nú gott af því að umgangast önnur börn
hún: ég man að mamma mín var nú alltaf heima og hún fór einu sinni á ári eitthvað og var þá í einn dag
ég: tímarnir breytast og mennirnir með...já eða eitthvað á þá leið...
hún: já þeir gera það...en áttu börn???

já...það er nú þannig...merkileg samtöl sem maður getur átt þegar maður eldist...

...en já ég er heima...veik...enn þá...gulli að hressast og emsið næstum hresst...þetta er allt að koma...allavega hjá öllum nema mér..uhu

annars hef ég nú lítið að segja...lítið merkilegt að frétta þessa dagana...merkilegt reyndar hvað það verður allt í drasli þegar maður er svona mikið heima...lesist: þegar emilía er svona mikið heima...hehe...hún á endalaust af dóti barnið og af hverju þarf hún að leika með það allt í einu...og svo ef maður ætlar að vera góð fyrirmynd og taka til og hvetja hana til að taka til með sér þá fær maður bara að heyra...æjj nei ég nenni því ekki...getur þú ekki bara gert það??? úff þetta barn...

svo er kötturinn reyndar ekki mikið skárri...hann fer á veiðar á nóttunni...já hann er sko veiðiköttur...man ekki hvort ég hafi sagt frá því áður en hann veiðir ekki fugla...ekki mýs...ekkert lifandi...nei hann veiðir rusl og kemur svo stoltur með það inn...rotnaðar svalafernur....plast utanaf grillkjöti...og bara ef það er rusl þá kemur hann með það inn...svo ef ég tek það og hendi því út þá stekkur hann á eftir því og kemur aftur með það!!!

...júbbs...held að þetta sé lengsta blogg sem ég hef skrifað...það er offisjalt...mér leiðist!

kannski skemmtilegra að hafa það með að loksins eru einkunnirnar búnar að skila sér og haldiði að kellan hafi ekki bara massað þetta allt...sumt með meiri glæsibrag en annað...ehemm...

já og koma svo...vil fá komment!

7. júní 2006

nappi ekki nappa!!!

...nappaði þessu af síðunni hennar unu og þetta ætti ekki að koma neinum á óvart...harhar

You Belong in London

You belong in London, but you belong in many cities... Hong Kong, San Francisco, Sidney. You fit in almost anywhere.
And London is diverse and international enough to satisfy many of your tastes. From curry to Shakespeare, London (almost) has it all!

6. júní 2006

í veikindaleyfi...


Emilía með kókómjólk
Originally uploaded by Anna Margrét.
...við pæjurnar erum heima í veikindaleyfi...emilía er með hita en að öðru leiti mjög hress held ég bara...vildum bara halda henni heima til að vera on ðe seif sæd...það er víst betra...

annars er ég á fullu að vinna þessa dagana...er loksins búin að fá allar einkunnirnar...já nema eina sem ég er nokkuð viss um að sé yfir lágmarkinu...en þetta kom allt saman vel út...

þessi mynd af prinsessunni er tekin út í "garðinum" okkar...þetta eru trén við hamarinn í hafnarfirði en það vill svo heppilega til að þau eru næstum í bakgarðinum okkar ;o)

25. maí 2006

alltaf að fikta...


Mummi í fikti
Originally uploaded by Anna Margrét.
var að fikta með þessa mynd í photoshop...hef reyndar ekki glóru um hvað ég var að gera þarna...en fannst þetta koma skemmtilega út...hægt að sjá "eðlilegri" útgáfu á flickrsíðunni...jebbídíjebb..

annars er mest lítið að frétta...lífið gengur sinn vanagang...miðað við að það er sumar...leikskóli hjá prinsessunni...vinna hjá kallinum...og sumarvinna hjá mér...er búin að vera á næturvöktum undanfarið og það er að ganga bara ágætlega...og ég sem get ekki einu sinni haldið mér vakandi í bíó!!!

jæja...ætla að fara og grilla...jömmí

12. maí 2006

Loksins búin í prófum!


110506-(120)
Originally uploaded by Anna Margrét.
jebb...þá er törnin loksins búin í bili og við tekur yndisleg vinna...já...eða þannig...

ég er búin að fá úr tvemur prófum...lífeðlisfræði og fósturfræði og ég massaði það með sjöum...og þá er bara að bíða og sjá með hitt...spennandi...

nú er dótlan mín byrjuð á leikskóla...eins og allir vita sem eru með mig á msn hjá sér...ehemm...aðlögunin gengur bara furðuvel...reyndar dálítið erfitt í hvíldinni í dag...hún var allavega sátt með að sjá mig og ömmu sína ;o)

ég er alltaf að sjá það betur og betur að kötturinn hann mummi (fjölskyldukötturinn) er í smá tilvistarkreppu...hann veit ekki hvort hann sé köttur eða hundur...já eða mús ef út í það er farið...hann malar eins og köttur...leikur sér eins og hundur og étur ost! svo í gær þegar ég fór til mömmu að læra þá kom hann með og það er ekki í fyrsta skipti sem hann eltir okkur þegar við förum eitthvað labbandi...nema það að hann var heima hjá mömmu allan þann tíma sem ég var þar og svo um tíu þegar ég lagði af stað heim þá elti hann mig bara...og alla leið heim!

jæja...ætla að drífa mig í sturtu og svo verður eitthvað skemmtilegt gert í kveld...


kannski að taka það fram að þessi ægifagra mynd var tekin í gærkvöldi þegar ég var á leiðinni heim eftir próflestur hjá mömmu...

18. apríl 2006

komin með dellu...


170406 (22)
Originally uploaded by Anna Margrét.
....jebb þið heyrðuð rétt...ég er komin með dellu...búin að smitast af familíunni...og dellan er myndavéladella...eða kannski réttara sagt ljósmyndadella...annars er þetta della á vægu stigi enn þá og er það líklegast vegna þess að ég kann ekkert að taka myndir...er bara að fikta og prófa...er nottla með eina stórglæsilegustu fyrirsætu landsins fyrir framan nefið alla daga ;o)

...stefnan er að versla sér "alvöru" myndavél en hann karl faðir minn var svo elskulegur að lána mér sína fínu myndavél þar sem að hann var að fjárfesta í einni alvöru sjálfur...ekki það að þessi vél sem ég er með í láni hjá honum sé eitthvað slæm....það er sko fínasta vél ;o)

jæja...best að koma sér í tiltektina svo ég geti náð í emilíu á eftir með góða samvisku...já og gleðilega páska og allt það!

...er að prófa að setja inn mynd með blogginu...þið afsakið ef þetta virkar ekki...hmm...er það ekki???

6. apríl 2006

er kominn tími á færslu???

ég er bara búin að vera á fullu undanfarið að gera eiginlega ekki neitt held ég bara...hef einhvern veginn ekkert nennt að blogga...er bara að lesa það sem aðrir blogga þessa dagana ;o)

...annars er slatti að gera hjá manni...verkefnaskil og fleira en það má samt segja að ég sé komin í frí...upplestrar/páskafrí...mæti allavega ekki í fleiri tíma...bara próf og verklegt...meira að segja verklegt próf á mánudag...jæks

...jæja nóg af rubbish í bili...out

5. mars 2006

veik smeik...

...já eða þannig...ég er bara búin að liggja í pest og þá meina ég liggja...þetta er í fyrsta sinn sem ég leyfi mér að vera veik síðan að dúllan mín fæddist...fór meira að segja ekki í vinnuna og var næstum send heim af st jós á föstudaginn...

annars er mest lítið í fréttum þessa dagana...bara mest allt við það sama...nema kannski það að ég er byrjuð í verknámi og vá hvað það er skemmtilegt...búin að fá að sjá magaspeglun og allt ;)

jæja...nóg í bili...

28. febrúar 2006

hmm...hvað er ég gömul???

You Are 26 Years Old

Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.


hehe...hann gulli er 24 ára...hann reyndar svindlaði...gerði aftur og þá var hann 27 ára :p

26. febrúar 2006

ég drekk ekki kaffi...

Samkvæmt kaffiprófinu er ég
Latte!
og samanstend af tvöföldum espresso og flóaðri mjólk.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?


jahá...þar hafið þið það...

annars var ég að horfa á snilldarmynd í gær með mínum heittelskaða...hún fjallaði um elvis og jfk og þeir voru á elliheimili að berjast við múmíu...já...svona er kvikmyndasmekkurinn hjá honum gulla mínum...geri aðrir betur

21. febrúar 2006

geisp....

æjj ég á að vera löngu komin upp í rúm...vorum að horfa á dh og ég náði ekki að halda athyglinni...er svo þreytt en nenni ekki upp í rúm...*spark í rass*

jæja...ætti kannski að koma mér bara í bælið...skóli klukkan átta og alles...

15. febrúar 2006

leti á háu stigi...

...já eða á ég kannski að segja þreyta...var inni með emilíu að fá hana til að fara að sofa og haldið að ég hafi ekki bara sofnað líka...var eiginlega ekkert þreytt þegar ég fór inn...geisp...

...er að horfa á bílahokkí...með yaris bílum...svakalega spennandi...huges pökkur og klesstir bílar eins og beljur á svelli...meira bullið sem hann gulli minn horfir á...já og meira bullið sem þessum bílaáhugamönnum dettur í hug...

...ég vildi að það væri kominn sunnudagur...þetta er svo langir dagar framundan...fullt af skóla og svo slatti af vinnu um helgina...hlakka til klukkan eitt á sunnudag því þá er ég komin í helgarfrí...jibbí...helgarfrí alveg til átta á mánudagsmorgun ;o) þvílíkur lúxus....já eða þannig

vorum í verklegu í lífeðlisfræði í dag...okkur var treyst fyrir helming af rottuþind og rottulegi...fengum að gefa þindinni straum í tíma og ótíma og svo fengum við að hella allskonar lyfjan...og ólyfjan út í lausnina með leginu...svo er þetta svo tæknilegt að við sáum bara áhrifin á tölvuskjá...svo er það leiðinlega...munnleg skýrsla og krossapróf í næstu viku...eða þar næstu...jæks

veistu...þessir menn í þessum þætti sem hann gulli er að horfa á eru ekki í lagi...nú eru þeir á skíðastökkpallinum í lillehammer...þú veist...þarna ólympíuleikarnir 1992 eða eitthvað...og þeir eru að fara að láta reyna á það hvernig fer fyrir austin mini á þessum stökkpalli...en þeir hafa nú vit á því að setja ekki ökumann í hann....jú því annars myndi hann deyja...þetta eru nú meiri trúðarnir...

jæja...ætli ég drífi mig ekki bara í bælið...langur dagur framundan...já eða dagar...geisp

14. febrúar 2006

commenting and trackback have been added to this blog.

Er búin að fá nóg af blog.central.is

já...og ég er barasta farin aftur hingað...eða þannig...get ekki sagt að ég hafi verið með opinbera bloggsíðu hér nokkurn tímann...en fiktaði þó nokkuð við þetta hér...

líst betur á þetta heldur en þetta íslenska dr#%!...ætla allavega að gefa þessu séns og reyna að breyta og bæta síðuna mína aðeins...jæja...sjáum hvað setur...