12. júní 2008

raunir húsmóður

...já eða þannig...þvottavélin sem ég fékk frá heimi bró sem hann fékk frá söndru tók upp á því að geispa golunni núna í vikunni...skemmtilegt nokk eða þannig...nú erum við gulli búin að vera að skoða þennan þvottavélamarkað og ég verð að segja að fyrir peningin sem sumar af þessum vélum eru að kosta þá kæmi mér ekker á óvart ef þær gætu sett þvottinn í sig sjálfar...brotið saman og gengið frá...þvílíkur peningur í þessu!

...mest lítið í fréttum af okkur þessa dagana...ég geri ekkert annað en að safna pissi frá honum benedikt því við erum að taka þátt í þessari brjóstagjafarannsókn...merkilegt hvað piltinum tekst að hitta út fyrir alla þessa bómullarhnoðra sem ég treð í bleyjuna hans...en við útskrifumst úr rannsókninni á sunnudaginn og þá fær litli maðurinn að borða...veit ekki hvort okkar hlakkar meira til...líklega ég þar sem að hann veit sennilega ekki af því að móðirinn er búin að ákveða að stöffa hann út af graut á sunnudaginn ;) en hann verður örugglega glaður þegar hann fær loksins mat

...það eru nú fleiri húsmóðursögur af mér því í öllu þessu þvottavélaskoðunarstandi þá festi ég kaup á svona töfrasprota slash þeytara slash mini-múlínex...nú á sko að fara að mauka ofan í litla...ætla sko að taka þetta með trompi!

ætli þetta verði ekki að duga af fréttum af mér og mínum í bili þar sem að ég ætti að fara að skríða undir sæng...jú því hann benedikt virðist enn haldinn þeim miskliningi að dagurinn byrji hálf sjö eða fyrr...ahh...geisp

4. júní 2008

fæðingarorlofssumarfrí

jæja...loksins komin í fæðingarorlofið...myndi aldrei trúa því að ég gæti í alvöru hlakkað til að fara að taka til heima hjá mér hehe....en það er allt skárra en að læra akkúrat núna...

ég skilaði verkefninu í gær og þá var þungu fargi létt...núna er bara að njóta lífsins og láta sér hlakka til að fara til danmerkur...jibbíkóla

en þar sem að ég hlakkaði svona til að fara að taka til...er þá ekki málið að halda áfram að gera það á meðan strumpurinn sefur úti í rokinu...

24. maí 2008

á spáni er gott að djamma og djúsa...

...diskótekunum á...jamm nú er gulli farinn út til spánar með vodafone...efast reyndar um að hann fari mikið á diskótek...en hann á örugglega eftir að djamma og djúsa...

ég er því ein í kotinu með krakkana...fer í verknám á morgun og þá fara þau til kollu...emilía að sjálfsögðu spennt...svo verðum við nú að vera alvöru íslendingar og halda júróvíjónpartí...emilía líka spennt yfir því...hún syngur hástöfum núna this is my life...eina línan sem hún kann í þessu lagi...og ég líka hehe

...jæja búin að lofa mér í búðarleik með pæjunni

19. maí 2008

sparkírass

jæja...kem með smá rollu núna...jafnvel þótt ég hafi engan tíma í þetta núna...nóg að gera í verknáminu...verð að segja það að ég vildi heldur bara vera að dúlla mér með honum benedikt...já drengurinn fékk nafnið benedikt einar við hátíðlega athöfn þann 22. mars síðastliðin...svona fyrir þá sem ekki vita...

ég klára verknámið núna um mánaðarmótin og þá ætla ég í laaaaangþráð fæðingarorlof...mikið hlakka ég til...þessa dagana er ég í verknámi upp á geðdeild...soldið strembið en er svona að komast í gírinn...var ég búin að segja hvað ég hlakka til þegar þetta er búið ;o)

...í júní ætlum við svo að skella okkur út úglanda...danmerkur nánar tiltekið...emilía er svakalega spennt...já og ætli ég verði ekki að viðurkenna að ég er líka spennt....en mig langar meira út...híhí...langar að fara með söndru til minníappólís...mmm...búðirnar...já og bara þetta gígantíska mall...væri alveg til í að skella mér...auglýsi hér með eftir lottovinning!

...jæja...ætla að drífa mig í háttinn...góða nótt góðir hálsar.

7. febrúar 2008

ég er engan veginn að standa mig

ekki sú duglegasta að blogga...viðurkenni það fúslega en hér með bæti ég úr því...

lítið í fréttum...er bara í mömmuleik og leik líka húsmóður svona við tækifæri...já og svo er ég víst í skólanum líka...bara nóg að gera

annars erum við gulli búin að horfa á 7 ár af gilmore girls núna á stuttum tíma...tókum nett maraþon yfir jólin en erum búin að vera í gilmorepásu undanfarið...svo erum við að klára seinustu seríuna núna og erum bara komin í jólaskap

jæja..ætla að horfa á þáttinn

31. október 2007

"skyndi"hjálp dauðans...

...ætli það sé of seint að reyna að lífga þetta blessað blogg við??? ætla allavega að reyna en það verður að koma í ljós hvernig það á eftir að ganga...mest lítið að frétta, er að vísu að vinna í því að fjölga mannkyninu og afraksturinn er væntanlegur í heiminn þann 13. desember sem er akkúrat í miðjum prófum...skipulagið að drepa mann

...við mæðgur sitjum hér og horfum á simpsons og svo bíð ég spennt eftir þætti kvöldsins af greys :)

þangað til næst...hafið það sem best

15. janúar 2007

Congratulations!




Your celebrity style icon is Gwyneth Paltrow!



You prefer classic, elegant designs. People notice how you look, not just what you�re wearing. That�s the key to a perfect outfit!



What's Your Celebrity Style?

Try another SheKnows quiz.

21. nóvember 2006

hvernig er þessi mynd???


Emilía í lit
Originally uploaded by Anna Margrét.
var að fikta eitthvað í photoshop....einmitt þegar ég á að vera að læra...furðulegt...haha!

annars var ég að breyta um eitthvað blogger kerfi og þá fóru allir íslensku stafirnir hérna við hliðina í eitthvað óskiljanlegt rugl...ég barasta nenni ekki að reyna að laga þetta...þið verðið bara að afsaka ;o)

15. nóvember 2006

"flottar" myndir...

rakst á þetta...og svo þessa síðu hjá gellu sem heitir jill greenberg...kíkið endilega á myndirnar af krökkunum...hún hefur fengið að finna fyrir því út af þeim...það er svo rosalegur sorgarsvipur á sumum börnunum þarna en hún segist bara hafa gefið þeim sleikjó og tekið hann svo af þeim...ekki vildi ég setja dúlluna mína í myndatöku til hennar!

jæja...ég á víst að vera að horfa á veronicu mars...eða ehemm að læra en hver nennir því svo sem...

hvað finnst þér?

20. október 2006

fallegt í firðinum...


Fallegt
Originally uploaded by Anna Margrét.
já...við emilía fórum upp á hamar um daginn þegar sólin var að setjast...það voru ekkert smá flottir litir í loftinu þarna...tók þessa mynd en sá ekki manneskjuna þarna fyrr enn eftir á...kemur bara vel út finnst mér ;o)

emilía var með myndavélina sína...chupa sleikjó myndavél...snilld...filmuvél með engri filmu...hún gjörsamlega elskar að "taka" myndir á hana...

gulli sýndi mér þetta í dag....svona í takt við fyrri póst frá mér...

mest lítið í fréttum...á soldið uppáþrengjandi kött...hann þarf alltaf að kúra hjá manni núna...einhver aðskilnaðarkvíði í gangi....krúttið ;o)

jæja...bakk tú sáþ park

17. október 2006

já alveg rétt...

...ég er víst með bloggsíðu...ekki að standa mig...haha

mest lítið í fréttum...búin að liggja í pest og fleira skemmtilegt...nú fer að líða að ritgerðarvinnu...á að skila ritgerð áður en ég fer í verknámið...þann sjöunda nóvember...já og svo er líka verkefni úr verknáminu...fjör!

...ég er stundum að skoða netið...sá þetta (takið sérstaklega eftir dæminu þarna þegar vídjóið er búið) og finnst nú ekki skrítið að fólk sem er að keppast við að líta út eins og súpermódel sé þunglynt og svartsýnt...þetta er allt saman bara feik!!!

jæja...nóg röfl í bili...hafið það gott og verið góð hvert við annað

27. september 2006

piss piss og pelamál...


Gosbrunnur
Originally uploaded by Anna Margrét.
fullt að gera í skólanum...má varla vera að því að vera til þessa dagana...

en fann mér nú samt tíma til að skoða þetta,
merkilegt hverju fólk nennir...sjæse...en aftur á móti er þetta snilld...

hafið það gott gott fólk...

15. september 2006

éttu úldinn hund...

You are a dog
Or maybe you are a mosquito, you certainly can't be human.

The highest pitched ultrasonic mosquito ringtone that I can hear is 21.1kHz
gáðu hvaða hringitóna þú heyrir

6. september 2006

þegar leiðin ekki finnst eru vandamálin minnst...

...ég er kort!

án gríns þá held ég að ég sé að verða heilaþvegin af dóru...já og emilía líka...hún er farin að tala í þáttunum...við getum ekki farið neitt öðruvísi en að hún fari að syngja...hvert ætlum við...skemmtilegt!

fyrst ég var að fatta you tube þá fannst mér þetta pínu áhugavert...en spurning hvernig þetta virki í real life...samt gaman að skoða... ;o)

5. september 2006

á ég að sprauta honum???


Buick, HDR
Originally uploaded by Anna Margrét.
var í verklegum tíma í dag og vorum að læra að sprauta...mikið gaman en kannski ekki eins gaman að vera stungin sjálf...en jújú...þetta var allt í lagi ;o)

ég hef heyrt um að fólk sé að taka eina mynd á dag og setji svo á netið...svo er fólk sem kíkir reglulega til að sjá allar nýju myndirnar...en svo er annað...fólk tekur mynd af sér á hverjum degi...svo setur það allar myndirnar í eitt video og spilar fjöruga eða dramatíska tónlist undir....lekker

allavega...hér er eitt video...og hér er annað...njótið vel

29. ágúst 2006

sumarprófið búið...

...og ég náði...fjúff...þvílíkur léttir ;o)

það var svaka partý hérna á laugardaginn...hele familíenn hittist og skoðuðu myndir sem pabbi tók í noregi...svaka fjör...enduðum kvöldið á því að panta pizzu...fimm stykki!

nú er litla daman hætt með bleyju og það gengur bara sérdeilis vel hjá henni...einstaka slys á leikskólanum í hvíldinni...en það hlýtur að hætta...hún pissar ekkert yfir nóttina...þvílíkur dugnaðarforkur þetta barn ;o)

...jæja maður ætti kannski að fara að sinna húsmæðrastörfunum...er víst solleis þangað til skólinn byrjar...það er heimavinnandi sko...

hafið það gott í dag...sem og alla hina!

17. ágúst 2006

farin að fikta...


Flower power
Originally uploaded by Anna Margrét.
...jebb...tók myndavélina með mér þegar ég rölti með emsið í leikskólann í morgun...og missti þar af leiðandi fyrirsætuna mína...þannig að ég barasta fann þetta blóm og bjó til fyrirsætu úr því...þetta er allavega fyrsta myndin sem ég er sátt með úr nýju vélinni minni...tekur nottla smá stund að læra á svona dótarí...

jæja...ég á víst að vera að læra eins skemmtilegt og það hljómar...

15. ágúst 2006

loksins loksins...

...jebb er loksins búin að fá myndavélina mína þannig að nú er bara að setjast niður og læra á hana...ehem...

er reyndar að fara í próf á þriðjudaginn þannig að ég á nú ekki eftir að hafa mikinn tíma til að lesa mér til...ja...spurning hvort fær meiri tíma prófið eða myndavélin...

annars er allt fínt í fréttum...fórum í bústað til gunnu og co um helgina með sigrúnu og co...höfðum það bara fínt í afslöppun...

jæja...bakk tú ðe búkks...

30. júlí 2006

mest lítið í fréttum...


Emilía á gangi
Originally uploaded by Anna Margrét.
...en samt ákvað ég að koma með fréttir...eða þannig...nú er sumarfríið næstum búið hjá feðginunum...þau byrja aftur í vinnu og leikskóla á morgun...mitt sumarfrí er "löngu" búið...

hef svakalega lítið að segja en vildi bara láta vita af nýjum myndum í safninu fyrir þá sem vilja kíkja á það...

25. júlí 2006

kominn tími á fréttir???


Óskýr fótbolti
Originally uploaded by Anna Margrét.
...jæja langþráða ferðalagið búið og sumarfríið að verða búið...úff alltof fljótt að líða...ljósi punkturinn er sá að skólinn fer að byrja og já...ég er búin að dobbla mömmu og pabba til að versla fyrir mig myndavél í fríhöfninni en þau eru að fara út fjórða ágúst...jibbí

...annars fór ferðalagið á svolítinn annan veg en ætlað var...skódiljóti bilaði og ekki er víst hvað sé að honum...en hann er nú ökufær druslan...en sen betur fer gat hann pabbi lánað mér honduna sína þannig að við erum ekki alveg bíllaus...

skrapp á fótboltaleik um daginn og tók þessa...það er nú bara gaman að reyna að mynda fótbolta...verst ég var með vélina stillt á of hátt iso og þessi vél er ekki að höndla það neitt voða vel...passa mig á því næst...hehe

eyddum megninu af ferðalaginu okkar í búðardal...þar var pabbi og svo nottla toni og þá var sko myndað...þeir með hvorn sinn hlunkinn og toni með sína tröllalinsu og ég með vasavélina...já gamla vélin hans pabba var eins og vasavél við hliðina á þessum alvöru...hehe

jæja...ætli þetta sé ekki nóg í bili...adios